Lestu vel

Reglur

  1. 01

    Hvernig keppnin virkar

    Keppendur stíga á svið einn í einu og hafa takmarkaðan tíma til að reyna að fá dómarana til að hlæja.

    Þeir mega nota uppistand, eftirhermur, gjörninga, búninga, leikmuni eða önnur skemmtiatriði sem falla innan reglna keppninnar.

    Markmiðið er einfalt: fá dómarana til að hlæja.

  2. 02

    Einn eða með vini

    Þú mátt keppa einn/ein/eitt eða með einum vini.

    Ef tveir skrá sig saman teljast þeir sem eitt atriði og koma fram saman á sviðinu.

    Allir þátttakendur — bæði í sóló- og tvíeykisatriðum — þurfa að samþykkja reglur keppninnar og samþykkja að atriðið megi vera tekið upp og notað í kynningarefni tengdu verkefninu.

  3. 03

    Dómarar

    Þrír dómarar sitja á sviðinu og reyna eftir fremsta megni að halda alvöru svip.

    Markmið keppandans er að fá sem flesta dómara til að hlæja áður en tíminn rennur út.

  4. 04

    Verðlaun

    Ef einn eða fleiri dómarar hlæja: fær atriðið vinning.

    Ef allir þrír dómararnir hlæja: fær atriðið stóran vinning.

    Vinningar eru að heildarandvirði 300.000 kr. og geta meðal annars verið gjafabréf, miðar á viðburði, AirPods Pro, PS5, styrktarvörur og aðrir vinningar frá samstarfsaðilum.

    Ef tveir keppa saman deila þeir vinningnum sín á milli, nema annað sé tekið fram.

    Margir þátttakendur geta unnið stóra vinninga á sama viðburði.

  5. 05

    Leyfilegt efni

    Leyfilegt er að nota uppistand, eftirhermur, dans, tónlist, búninga, leikmuni, töfrabrögð, persónusköpun og önnur skapandi skemmtiatriði.

    Markmiðið er einfaldlega að skemmta og fá dómarana til að hlæja.

  6. 06

    Bannað efni

    Ekki er heimilt að nota:

    • Líkamlegt ofbeldi eða hættuleg atriði
    • Haturstal eða mismunun gagnvart einstaklingum eða hópum
    • Áreitni, hótanir eða persónulegar árásir
    • Ólöglega hluti eða athafnir

    Keppendur mega vera djarfir, óvæntir og ýta á mörkin — en framleiðendur áskilja sér rétt til að stöðva atriði ef það fer yfir mörk öryggis, laga eða virðingar fyrir öðrum þátttakendum.

  7. 07

    Upptökur og birting efnis

    Keppnin verður tekin upp á myndband og ljósmyndir teknar á viðburðinum.

    Efnið kann að verða notað í kynningarefni, á samfélagsmiðlum og í framtíðarefni tengt keppninni og framleiðendum.

    Með þátttöku samþykkir þú að efni þar sem þú kemur fram megi nota í þessum tilgangi.

  8. 08

    Aldur og samþykki forráðamanns

    Keppnin er opin öllum aldri.

    Þátttakendur undir 18 ára aldri þurfa samþykki forráðamanns til að taka þátt.

    Við skráningu yngri þátttakenda þarf að skrá nafn, símanúmer og netfang forráðamanns. Við höfum samband við forráðamann til staðfestingar.

Tilbúin/n?

Skráðu þig og taktu þátt.

Skrá mig